Núna
Hinn virti leikstjóri Hlynur Pálmason leikstýrir þessari stuttmynd sem veitir okkur einstaka innsýn í gang árstíðanna á Íslandi.
Á Norðurlöndunum búa yfir 27 milljón manns, sem samanlagt tala yfir hundrað tungumál. Hluti þeirra tungumála, eru svo skyld, að það er lítið mál fyrir fólk sem tala ólík mál að skilja hvert annað, önnur skilja sig hins vegar rækilega frá hinum. Hér er hægt að kanna hvað er líkt og ólíkt með tungumálunum og samfélögum sem þau halda uppi á Norðurlöndunum.
Álandseyjar eru hluti af lýðveldi Finnlands, en hafa eigið sjálfstjórnarþing. Þar búa 30.000 manns. Flest fólk býr í einu borg eyjanna: Mariehamm. Eyjaklasinn samanstendur af yfir 6.500 eyjum og skerjum, og opinbert tungumál þar er sænska. Á Álandseyjum er rjómi kallaður „snömos“ (snjómosi).
Vertu með í samstarfinu
- 5.-6. klasse MøllevangskolenVi er en sød og livlig 5. klasse på en midtbyskole i Aahus6.-7. bekkur21.03.2024
- 7AB LARÖDS SKOLA8.-10. bekkur01.12.2022
- 8.ÅK STENKULASKOLAN8.-10. bekkur01.12.2022
Norden i Skolen er ókeypis kennsluvefur sem starfar óháð stjórnmála-, trúar- eða annars konar hugmyndafræðilegum hreyfingum. Vefurinn leggur upp með að gefa nemendum og kennurum á Norðurlöndunum verkfæri til að þjálfa upp og viðhalda nágrannamálskilning milli skandinavísku tungumálanna, samhliða því að efla norrænt menningarlæsi og kynna norræna nemendur fyrir öðrum samfélögum á hinum Norðurlöndunum. Hjá okkur er alltaf rými til að uppgötva, kynna sér og upplifa eitthvað nýtt.