Norræna skólaspjallið er nýstárleg og skemmtileg leið fyrir nemendur á Norðurlöndum til að kynnast hver öðrum. Spjallið gefur þeim einstakt tækifæri til að æfa sig í að skilja mun og líkindi milli nágrannamálanna dönsku, norsku og sænsku.
Skólaspjallið er rúllandi spjall, sem gefur nemendum tækifæri til að ræða við jafnaldra sína á Norðurlöndum í handahófskenndri röð. Á skjánum birtast tveir spjallgluggar – sér maður sjálfan sig í öðrum og norrænan nemanda, valinn af handahófi, í hinum. Allir nemendur á Norðurlöndum geta tekið þátt – frítt!
Hvernig getur bekkurinn minn tekið þátt í norræna skólaspjallinu?
Skráðu bekkinn þinn til leiks þann dag sem þið hyggist taka þátt, með því að velja skráningarhnappinn við viðburðinn. Yfirlit yfir viðburðina má nálgast á síðu norræna skólaspjallsins. Þegar stóra stundin rennur upp getur þú skráð þig inn á skólaspjallið. Gakktu úr skugga um að allur tæknibúnaður, net og annað, sé í lagi og að vírusvarnir/eldveggir verði ekki til vandræða áður en hafist er handa.
Hvernig skrá nemendur sig inn á norræna skólaspjallið?
Þeir skrá sig inn með sérstöku notendanafni fyrir nemendur sem er sent út þegar bekkurinn er skráður til leiks. Allir nemendur í bekknum geta notað sömu notendaupplýsingar.
Hvernig skráir maður sig úr skólaspjallinu?
Viljir þú skrá bekk þinn úr tilteknum spjallviðburði getur þú gert það með því að smella á hlekkinn í staðfestingarpóstinum sem sendur var þegar bekkurinn var skráður til leiks. Gakktu að því loknu úr skugga um að bekkurinn sé örugglega ekki lengur skráður.
Tæknikröfur
- Nota þarf vafrana Firefox eða Google Chrome (Safari-iPad)
- Tölvurnar og tablets þurfa að vera útbúnar vefmyndavélum og hljóðnemum
- Mælt er með að nemendur noti heyrnartól
GÓÐ HEGÐUN – GÓÐAR STUNDIR
Norræna skólaspjallið á að vera bæði notalegur og skemmtilegur vettvangur fyrir nemendur til að kynnast jafnöldrum sínum á Norðurlöndum. Norden i Skolen fer þar af leiðandi fram á að þátttakendur komi almennilega fram hver við annan og sýni viðmælendum sínum virðingu. Mælst er til að bekkurinn ræði ítarlega saman um góða hegðun á netinu (netsiðferði), áður en hafist er handa. Ræðið til að mynda við nemendur ykkar um að þeir séu ekki einungis fulltrúar síns sjálfs í samskiptum við nemendur frá hinum Norðurlöndunum, heldur einnig sendiherrar skóla síns, borgar og lands.
Spjallið er ekki opið öllum stundum, heldur eingöngu á fyrirfram ákveðnum tímasetningum, þar sem fylgst er með því sem fram fer. Lagt er upp með að engin ritskoðun eigi sér stað, en ef Norden i Skolen tekur eftir óviðeigandi hegðun er hægt að bregðast skjótt við og loka á aðgang viðkomandi. Þá er auk þess tikynningarhnappur í spjallglugganum, sem nemendur geta ýtt á ef þeir verða vitni að óviðeigandi hegðun eða framkomu.