Styrkmöguleikar
Ert þú að vinna að norrænu verkefni sem þú vilt fara með á næsta stig? Hér fyrir neðan eru ýmsar stofnanir sem gætu veitt draumaverkefni þín styrk. Styrkirnir standa til boða öllum íbúum Norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum: Danmörku, Íslandi, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum. Hafið í huga að margir sjóðir hafa ákveðin umsóknartímabil og löng úrvinnslutímabil, svo það er gott að byrja að vinna í umsóknum tímanlega og vel fyrir byrjunarpunkt verkefnisins.
- Nordplus veitir fjárhagslega styrki til ýmis konar menntunatsamstarfs, og úthlutunin skiptist í fimm hluta. Nordplus tekur þar að auki einnig við umsóknum frá Eystrarsaltsríkjunum
- Nordisk kulturfond Sjóðurinn styður verkefni sem miða að því að endurnýja lista- og menningarlíf á Norðurlöndunum. Ekki er nauðsynlegt að hafa fasta búsettu í norrænu landi, né að vera norrænn samfélagsþegn til að sækja um. Verkefnið þarf aftur á móti að hafa norræna skírskotun.
- Nordisk kulturkontakt hefur umsjón með ólíkum styrkjum tengdum skólakerfinu.
- NAPA Kulturstøtteprogram NAPA vill leggja sitt af mörkum til þess að börn og ungmenni í Grænlandi upplifi að að þau geti plumað sig á fjölbreyttum vettvangi. Verkefnið á að virkja og örva ungt fólk í Grænlandi til að taka virkan þátt í menningarsköpun og -miðlun, vinna sjálfbært á umhverfisvænan og samkeppnishæfan máta og halda sjónarmiðum norðurslóða á lofti á Norðurlöndunum. Þáttakandi skal vera a.m.k. einn grænlensku fulltrúi, sem vinnur með minnst einum fulltrúa frá norrænu löndunum/sjálfstjórnasvæðunum.
- Erasmus+ Í gegnum Erasmus+ geta leikskólar, grunnskólar, háskólar, iðnskólar og fullorðinsfræðslustofnanir á borð við sveitarfélög, frístundaheimili og aðrar stofnanir sótt um styrk til að fjármagna samvinnuverkefni og skiptiprógröm með stofnunum í öðrum löndum.
- Stiftelsen Clara Lachmanns fond er skandinavísk sjálfseignarstofnun sem starfar að því markmiði að efla samhug skandinavísku landanna. Styrkir eru í boði til að halda viðburði í Svíþjóð, Noregi, Íslandi og Danmörku, þar með talið Grænland og Færeyjar. Stofnunin styrkir meðal annars námsferðir, málþing og menningarstarfsemi.
- Svenska kulturfonden Verkefni Svenska kulturfondens er að styðja við sænska menningu og menntun, sænska tungumálið og athafnalíf á sænsku í Finnlandi. Finnsk samtök og vinnuhópar sem og finnskir einstaklingar geta sótt um styrki.
- Vestnordisk hovedstadsfond - Nuuk, Reykjavik, Tórshavn Markmið sjóðsins er að efla skilning og samvinnu milli stjórnmálafólks og borgara í Nuuk, Reykjavík og Tórshavn, og úthluta fjárhagslegum stuðning til verkefna í því samhengi (t.d. á sviði menningar, kennslu eða íþrótta).
- Svenska folkskolans vänner eru samtök sem styðja menntun á sænsku í Finnlandi og leggja sitt af mörkum til að skapa fjölbreytt og umburðarlynt samfélag þar sem hið finnlandssænska skipar sterkan, sjálfsagðan og jákvæðan sess. Einstakir aðilar, vinnuhópar og stofnanir (t.d. skólar og samtök) eru hvött til að sækja um.
- Pohjola-Norden (Finnland) Samtökin bjóða upp á styrki fyrir kennara, nema í Finnlandi sem vilja halda í norrænar námsferðir eða nám í hinum norrænu löndunum. Þar að auki geta nemendur og aukið við þekkingu sína um Norðurlöndin á mála- og menningarnámskeiðinum eða nemendaráðstefnum.
- Foreningen Norden (Noregur) Bekkir og nemendahópar í skólum eru meðlmir í Norræna félaginu (þ.e. því norska) geta sótt um styrki. Við gefum þrepaskipta styrki til verkefna sem snúa að nemendaskiptum við norræna vinabekki. Stakir kennarar og nemendahópar við skóla sem eru meðlimir í Norræna félaginu hafa líka möguleika á því að sækja um styrk fyrir sérferðir til að skipuleggja skólasamstarf, kennaraskipti og námsferðir.
- Foreningen Norden (Danmark) Norræna félagið (í Danmörku) hefur umsjón með lítilli úthlutun á dvalarstyrkjum til ungra Íslendinga sem vilja mennta sig í hinum ýmsu heimavistaskólum Danmerkur. Námið skal fara fram í annaðhvort folkehøjskole, håndarbejdsskole, ungdomshøjskole eða efterskole.
Tvíhliða menningarstyrkir
Eftirfarandi styrkir styðja menningarsamstarf milli tveggja norrænna landa/sjálfstjórnarsvæða. Oft þ.m.t skólastarf og námsferðir.
- Kulturfonden for Finland og Danmark
- Dansk-Færøsk Kulturfond
- Den Grønlandske Fond
- Dansk-íslenski samvinnusjóðurinn
- Dansk-íslenski sjóðurinn
- Fondet for Dansk-Norsk samarbeid
- Fondet for Dansk-Svensk Samarbejde
- Íslensk-finnski menningarsjóðurinn
- Kulturfonden för Finland och Norge
- Kulturfonden för Sverige och Finland
- Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn
- Svensk-Norska samarbetsfonden
- Norskt-íslenskt menningarsamstarf
- Svensk-danska kulturfonden
- Grænlandssjóðurinn